1. Gildissvið
Herbert.is selur vörur í vefverslun sinni á vefsvæðinu: www.herbert.is – vefsíðan er í eigu Blessun ehf, Kríuhólum 4, 111 Reykjavík. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Herbert.is annars vegar og kaupanda vöru (einnig vísað til sem "viðskiptavinur" eða "notandi").
Viðskiptavinur (eða "kaupandi") er sá einstaklingur sem kaupir vöru í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Viðskiptavinur getur líka verið fyrirtæki og eiga þá við lög um lausafjárkaup nr. 50/2000. Um viðskipti í vefverslun Herbert.is gilda lög um neytendasamninga nr. 16/2016. Um viðskiptin í vefverslun gilda einnig lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. Ofangreind lög gilda um réttarstöðu viðskiptavinar og seljanda þegar sérstökum ákvæðum þessara viðskipta
Skilmálar þessir eiga við um kaup á vöru í verslun og/eða í vefverslun Herbert.is eftir því sem við á hverju sinni. Með því að samþykkja skilmála þessa staðfestir viðskiptavinur að hann er upplýstur um rétt sinn og skyldur við kaup á vöru á Herbert.is. Frávik frá þessum skilmálum telst ekki samþykkt nema með undirritun seljanda. Herbert.is áskilur sér rétt til að uppfæra og breyta skilmálum þessum sé þess þörf og taka breytingarnar þá gildi við birtingu uppfærðra skilmála á vefsíðu Herbert.is. Ef um verulegar breytingar er að ræða mun Herbert.is birta sýnilega tilkynningu þess efnis á vefsíðu Herbert.is
2. Samskiptaupplýsingar
Hafi viðskiptavinur spurningar sem ekki má finna svör við í skilmálum þessum er hægt að hafa samband í síma: +354 863-3277 eða senda fyrirspurn á netfangið: shop@herbert.is
3. Upplýsingar um vörur og verð
Herbert.is selur vörur í vefverslun og býður kaupanda að fá vöruna senda á skilgreindan áfangastað, með Póstinum eða með persónulegri heimsendingu. Eftir atvikum Herbert.is vörur í umboði þriðja aðila og geta slíkir þriðju aðilar borið beina ábyrgð gagnvart kaupanda. Leitast er við að upplýsa kaupanda þegar það á við. Öll verð í vefversluninni er í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK) og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í vefverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða rangrar skráningar. Ef mistök verða við verðmerkingar á vörum í vefverslun, sem eru þess eðlis að kaupanda má vera ljóst að um augljós mistök sé að ræða, áskilur Herbert.is sér rétt til að falla frá afgreiðslu á pöntun og endurgreiða viðskiptavin án tafar hafi greiðsla farið fram.
4. Skráning á póstlista Herbert.is
Viðskiptavinir Herbert.is geta valið að skrá sig á póstlista Herbert.is inn á www.herbert.is. Aðilar á póstlista Herbert.is fá reglulega sendan tölvupóst sem inniheldur m.a. fréttir og fróðleik af versluninni, upplýsingar um tilboð, vörur og vöruframboð á Herbert.is, upplýsingar um viðburði, kannanir og tilkynningar um gjafaleiki og vinningshafa í gjafaleikjum o.fl.
Viðskiptavinur getur ávallt skráð sig af póstlistanum og þar með hafnað viðtöku markpósts. Hægt er að gera slíkt með því að smella á tengil neðst í póstinum og staðfesta afskráningu eða með því að senda beiðni þess efnis á netfangið: shop@herbert.is
Við skráningu á póstlista Herbert.is er upplýsingum sem viðskiptavinir skrá sjálfir og verða til við notkun á vefsvæði Herbert.is deilt með Mailchimp. Mailchimp hýsir póstlista Herbert.is og er tól sem notað er í markaðslegum tilgangi. Mailchimp tengist svo þjónustum Google og Facebook til notkunar við frekara markaðs- og kynningarstarf Herbert.is.
5. Pöntun, greiðsla og fyrirvari um afgreiðslu vörukaupa í vefverslun
Ef viðskiptavinur er undir 16 ára aldri ber honum að upplýsa foreldra eða forráðamann um skilmála þessa og fá samþykki þeirra áður en vörukaup eru framkvæmd.
Viðskiptavinir geta skoðað og breytt völdum vörum í körfu í vefverslun. Þegar viðskiptavinur ætlar að ganga frá pöntun velur hann “complete order” þar sem skrá þarf netfang, nafn, símanúmer og heimilisfang. Því næst þarf viðskiptavinurinn að velja ‚”delivery” og velja hvernig hann vill fá vöruna afhenta. Viðskiptavinur verður að hafa gefið upp rétt heimilisfang óski hann eftir því að fá vöruna senda heim. Sé ekki hægt að staðfesta það heimilisfang sem viðskiptavinur skráir áskilur Herbert.is sér rétt til að hafna afhendingu og hætta við afgreiðslu á pöntun.
Því næst þarf viðskiptavinur að velja greiðslumáta. Herbert.is notar örugga greiðslugátt frá Rapyd á Íslandi. Hægt er að greiða fyrir vörukaup með kreditkortum frá Visa og Mastercard eða staðgreiða með debetkorti. Viðskiptavinur þarf að staðfesta greiðslu með 3D Secure öryggiskóða sem hann fær sendan í það símanúmer sem tengt er við það greiðslukort sem viðskiptavinur hyggst nota við greiðslu á vörukaupum.
Áður en viðskiptavinur velur “Complete Order” þarf hann að staðfesta að hann hafi kynnt sér viðskiptaskilmála Herbert.is Því næst fær hann sendan tölvupóst sem staðfestir móttöku pöntunar. Í kjölfarið, þegar greiðsla fyrir kaupunum hefur borist Herbert.is og pöntun er tilbúin til afhendingar, fær viðskiptavinur senda staðfestingu á kaupum og rafrænan reikning í tölvupósti. Herbert.is áskilur sér einhliða rétt til að hafna þjónustu, loka aðgangi, stöðva eða falla frá afgreiðslu á pöntun ef þurfa þykir, m.a. af öryggisaðstæðum, ef upp koma tæknileg vandamál, vandamál við afhendingu eða önnur vandamál sem koma í veg fyrir endanlega afgreiðslu pöntunar. Viðskiptavinur verður látinn vita ef slík staða kemur upp og hafi greiðsla farið fram fyrir vörukaupunum er endurgreiðsla framkvæmd án tafar.
6. Gjafabréf og afsláttarkóðar
Viðskiptavinir geta greitt með gjafabréfi bæði í verslun og vefverslun. Þegar greitt er með gjafabréfi í vefverslun er kóði fylltur inn í viðeigandi reit og virkjaður áður en gengið er frá pöntun í kaupferlinu. Gjafabréf gildir í 4 ár frá útgáfudegi.
7. Afhendingar- og sendingarmáti
Vara sem keypt er í vefverslun Herbert.is getur viðskiptavinur valið að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingastað.
Sóttar pantanir:
Kaupandi, sem pantað hefur í gegnum vefverslun Herbert.is en velur að sækja pöntun getur samið munnlega við vefverslunina í gegnum shop@herbert.is um afhendingu. Verður þá úr því ráðið í samráði við kaupanda. Skal kaupandi framvísa staðfestingu á vörukaupum, s.s. rafrænum reikningi, er hann vitjar vörunnar. Herbert.is tekur sér 2-3 virka daga að jafnaði til afgreiðslu sóttra pantana. Kaupanda berst staðfesting í tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar í verslun.
Sendar pantanir:
Velji viðskiptavinur að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingastað tekur Herbert.is sér 2-3 virka daga þar til vöru er komið til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. Upphæð sendingarkostnaðar ræðst af þeim sendingarmáta sem viðskiptavinur velur en.
Viðskiptavinir geta valið um að fá vöruna senda á skilgreint heimilisfang, í póstbox og á pósthús. Pósturinn er dreifingaraðili Herbert.is og sér um sendingu og afhendingu á keyptum vörum til viðskiptavina. Um afhendingu vörunnar gilda því afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar þessa aðila. Eingöngu er hægt að fá vörur Herbert.is sendar innan Íslands enn sem komið er. Herbert.is áskilur sér rétt til að breyta skilmálum er varða verð, afhendingar- og sendingarmáta, án fyrirvara.
8. Skila- og skiptaréttur
Skilafrestur á keyptum vörum í verslun og vefverslun er 30 dagar frá dagsetningu kvittunar eða rafræns reiknings fyrir kaupunum. Þess ber þó að athuga að réttur viðskiptavinar til endurgreiðslu er mismunandi eftir því hvort vara er keypt í verslun eða vefverslun.
- Vara sem keypt er í verslun og viðskiptavinur vill skila býðst að skipta vörunni í aðra vöru eða skila vörunni og fá útgefna inneignarnótu að upphæð vörunnar. Upphæð inneignarnótu miðast við það söluverð sem tilgreint er á kvittun fyrir kaupunum.
- Vara sem keypt er í vefverslun og viðskiptavinur vill skila býðst að fá vöruna að fullu endurgreidda sé henni skilað innan 14 daga frá kaupunum og þeirri dagsetningu sem skráð er á rafrænan reikning. Upphæð endurgreiðslu miðast við það söluverð sem tilgreint er á reikningi fyrir kaupunum. Upphæð vöru er ávallt endurgreidd inn á þann greiðslumiðil sem notaður var við kaupin. Sé vöru sem keypt er í í vefverslu hins vegar skilað síðar, þ.e. eftir að 14 dagar eru liðnir frá vörukaupum, er gefin út inneignarnóta samkvæmt söluverði vörunnar á rafrænum reikningi fyrir kaupunum.
Skil á vöru eru háð eftirfarandi skilyrðum:
- Að vöru sé skilað innan 30 daga frá dagsetningu kvittunar/rafræns reiknings fyrir kaupunum.
- Framvísað sé kvittun/rafrænum reikningi fyrir kaupunum eða vara merkt með skiptimiða.
- Að varan sé ógölluð, í fullkomnu lagi og í söluhæfu ástandi
- Að varan sé ónotuð
- Að varan sé í óuppteknum og/eða upprunalegum umbúðum.
- Að allir aukahlutir sem fylgja með vörunni, ef við á, séu til staðar.
- Að vara sé ekki sérpöntuð eða sérsniðin að þörfum viðskiptavinar eða á annan hátt framleidd og afhent samkvæmt forskrift kaupandans eða ber skýrt auðkenni hans.
- Að vara sé ekki fyrnd eða þess eðlis að líklegt sé að hún fyrnist/rýrni, sbr. matvara og snyrtivara.
- Að varan sé ekki útsöluvara eða tilboðsvara og/eða sérstaklega merkt þannig að henni fáist ekki skipt.
Starfsfólk Herbert.is metur söluhæfi skilavöru og áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða neita viðskiptavini um fulla endurgreiðslu sé eitthvert ofangreindra skilyrða ekki uppfyllt. Starfsmenn Herbert.is geta þó í einstaka tilvikum ákveðið að taka á móti vöru þó ofangreind skilyrðu séu ekki uppfyllt og fær viðskiptavinur þá kaupverðið endurgreitt að hluta, að hámarki 70% af kaupverði.
Ef kaupandi telur sig hafa keypt eða fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það í verslun eða með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið: shop@herbert.is um leið og galla er vart sem inniheldur lýsingu á umræddum vörugalla. Að öðrum kosti getur kaupandi glatað rétti sínum til endurgreiðslu. Sannarlega gölluð vara er endurgreidd eða annað eintak af sömu vöru afhent eða send kaupanda. Sé gallaðri vöru skilað með endursendingu greiðir Herbert.is sendingarkostnað. Sýna þarf kvittun eða senda rafrænan reikning með til staðfestingar á því að hin gallaða vara hafi verið keypt hjá Herbert.is. Um galla fer að öðru leyti samkvæmt lögum nr. 2003/48 um neytendakaup.
Mistök í afgreiðslu á vöru eru að sjálfsögðu leiðrétt eins fljótt og hægt er, kaupanda að kostnaðarlausu. Rangt afgreiddar vörur verða þó að berast innan viku frá endurgreiðlu þannig að leiðrétta megi mistök við afgreiðslu og afhenda kaupanda rétta vöru
9. Hvernig skila ég vöru?
Vörur sem keyptar eru á Herbert.is má skila með endursendingu. Hafi viðskiptavinur keypt vöruna í vefverslun, fengið hana senda en vill skila henni í formi endursendingar þá fyllir hann út miða sem fylgir pöntuninni með upplýsingum um nafn, pöntunarnúmer og greiðslumáta. Viðskiptavinur getur þannig annaðhvort fengið vöruna endurgreidda inn á sama greiðslumiðil og notaður var við kaupin eða óskað eftir sömu vöru í annarri stærð eða lit sé slík vara til á lager. Endursendum vörum skal pakkað vel inn þannig að þær skemmist ekki í flutningi. Kaupandi ber ábyrgð á vörum í endursendingu þar til hún er móttekin af Herbert.is. Kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá kaupanda, er á ábyrgð kaupanda. Frekari fyrirspurnum varðandi endursendingar má beina á netfangið: shop@herbert.is
10. Meðhöndlun persónuupplýsinga
Öll meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og persónuverndaryfirlýsingu Herbert.is þar sem finna má m.a. upplýsingar um eftirfarandi:
- Meðhöndlun persónuupplýsinga vegna almennra samskipta við Herbert.is
- Meðhöndlun persónuupplýsinga við heimsókn á vefsíðu Herbert.is
- Meðhöndlun persónuupplýsinga við kaup á vörum í vefverslun Herbert.is
- Meðhöndlun persónuupplýsinga í tengslum við markaðs- og kynningarstarf Herbert.is
- Meðhöndlun persónuupplýsinga í tengslum við rafræna vöktun á Herbert.is
Persónuverndarlög kveða á um og tryggja einstaklingum ákveðin réttindi varðandi meðhöndlun persónuupplýsinga. Viðskiptavinir eru hvattir til að kynna sér nánar þau réttindi í persónuverndaryfirlýsingu Herbert.is. Frekari fyrirspurnum má beina til: shop@herbert.is
11. Höfundaréttur
Allt efni sem birtist á vefsvæði Herbert.is s.s. texti, grafík, video, lógó og myndir, eru eign Herbert.is, Blessun ehf. og samstarfsaðila og nýtur höfundaréttarverndar og eftir atvikum einkaréttarverndar. Efnið má ekki nota, breyta, birta, endurgera, afrita, selja eða hagnýta á annan hátt af þriðja aðila án leyfis og samþykkis Herbert.is.
12. Lög og varnarþing
Íslensk lög skulu gilda um viðskiptaskilmála þessa. Rísi ágreiningur milli aðila skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir kærunefnd þjónustu- og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.